Birna Rebekka

Fréttir af Freknukrúttinu

14.04.2006 15:49:09 / Freknukrútt

blogg með grænum stöfum

Ég verð nú að fá að láta í ljós óánægju mína á þessu blessaða veðri á þessari annars ágætu eyju..... Ég er búin að vera sannfærð um það í hvert skipti sem það kemur sól að NÚ komi sko ekki aftur snjór ... ég held að ég hætti bara að tjá mig um þetta mál og athugi hvað gerist þá. Kannski er ég bara að hafa slæm áhrif á þetta, hver veit.

Annars er svosem voðalega lítið búið að vera í gangi hjá mér ... Ég er í páskafríi, eins og svo margir aðrir ... ætlaði að vera GEGGJAÐ dugleg að læra ... en tja ... fríið er ekki búið ... og það er svona eins og ein ritgerð, einn fyrirlestur, eitt verkefni í landafræði, tvö íslenskuverkefni, lesa alla kaflana í uppeldisfræði og fleira sem er eftir hjá mér J haldiði ekki að rúlli þessu upp ??? Á ég nokkuð að vera að stressa mig yfir þessu, það borgar sig ekki.

 

Annars hefur mér alltaf fundist þessi dagur, föstudagurinn langi vera alveg ótrúlega leiðinlegur .... þetta er svona hangs dagur, ég fýla ekki svoleiðis daga ;-) Á morgun er svo venjulegur dagur ... og svo er páskaeggjadagur, ég fæ bónuspáskaegg nr 4 .. Gummi gaf mér :-)

 

Ég fór í gær og kauffti mér DVD spilara ... voða lítinn, sætan og ódýran. Svo hélt ég uppá það með Söru í gærkvöldi með því að fara og leigja okkur VHS spólu .. hehehe !!!!!

Annars var þetta frekar skemmtilegt kvöld í gær sko.  Sara kom og náði í mig og það fursta sem hún segir við mig þegar ég kem útí bíl er það að nú haldi hún sko að bíllinn sinn sé að bila, hann væri e-ð svo skrýtinn ... núnú svo bara keyrðum við áfram og vorum nú ekki komnar langt þegar að hann greinilega “bilaði” alveg, hún stoppar og fer út ... jújú haldiði að það sé ekki bara sprungið í tætlur .... beint í skottið, náð í varadekkið og hmmm já, hvernig setur maður það nú á :p  þetta var allavegana frekar skrautlegt, ég svona meira stóð og horfði á og bað hana vinsamlegast um að passa það að slasa sig ekki. Hún greyið gerði þetta allt í öfugri röð og ég veit ekki hvað og hvað ... En svo kom e-r “töff” kall mér kúrekahat og hjálpaði okkur aðeins ... en svo gat hún Sara mín þetta bara ... og ég hugsa að ég gæti sjálf skipt um dekk næst ef það springur, það er að segja ef það gerist fljótlega því annars verð ég auðvitað búin að gleyma því .......

 

En svo bara bara kíkt aðeins til Kalla, það var fínt ... fyrir utan það að ég hélt að hundurinn hanns ætlaði að éta mig, úff ..... En svo bara heim og horft á spóluna í VÍDEÓ tækinu mínu J fínasta mynd, mjög sorgleg, féllu nokkur tár .. og svo var farin að sofa ... og við skulum taka það fram að Sara SOFNAÐI Á UNDAN MÉR J JJ J eiginlega langt á undan mér ... ég er ekki vön að hafa svona aðskotarhlut uppí rúmi hjá mér, hehe .. Svo vaknaði hún greyið og hélt að það væri ROTTA inní herberginu mínu... hmmm einmitt... þetta var blað !!!!

 

En þetta var ágætt sko, og Sara mín þú mátt lúlla hjá mér þegar þú villt ... getum kannski tekið DVD næst J 

 

Hafið það gott kæru vinir J ég er búin að BLOGGA

 

 

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 10:41:11 / Freknukrútt

Afmæli


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 00:00:40 / Freknukrútt

bara að brosa :-)

Hversu yndislegt getur þetta líf verið segi ég nú bara. Dagarnir líða hjá eins og druslulegir gamlir bílar sem má segja að séu komnir ansi nálægt grafarbakkanum, ef þið skiljið líkinguna.  Eitt augnablik (2daga) fyllist hjarta mans af von, gömlu druslulegu bílarnir eru með farangur, þeir skutla sólinni og fuglunum til okkar. Það að búa á Íslandi á nú að hafa kennt manni ýmislegt í gegnum tíðina, og þar á meðal að taka ekki mark á veðurfari og gera sér ekki óþarfa vonir. En maður bara verður svo lítill í sér og það er ekki laust við að það vakni upp með manni tilfinningin fyrir sumrinu. En tilfinningin helst ekki ýkja legni vegna þess að druslurnar sækja farangurinn sinn aftur og hverfa með hann útí bláinn.

Gamli grái hversdagsleikinn tekur við á ný. Og hvað getur maður annað gert en að BÉ ERR O ESS A  J JJ JJ JJ J (brosa sko)


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 22:44:34 / Freknukrútt

oc

ÞAÐ ER EKKI SKJÁR EINN Í SPORTHÚSINU !!!

BARA SVONA AÐ LÁTA YKKUR VITA EF YKKUR DETTUR Í HUG AÐ SKELLA YKKUR ÞANGAÐ Á MÁNUDAGSKVÖLDI KLUKKAN 8 TIL ÞESS AÐ HORFA Á OC .. SEM SAGT VERA DUGLEGUR OG HORFA Á GEGGJAÐAN ÞÁTT Í LEIÐINNI... NÍBB, ÞÁ ER ÞAÐ EKKI HÆGT

BARA AÐ BJARGA YKKUR FRÁ MIKLU SVEKKELSI !!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 13:15:57 / Freknukrútt

Ætli það sé e-ð til í þessu ??????

 

Allavega 5 manneskjur í þessum heimi elska þig svo mikið að þær myndu deyja fyrir þig.
Minnsta lagi 15 manneskjur sem elska þig á einhvern veg.
Eina ástæðan að eitthver hatar þig er af því hann vill vera eins og þú.
Eitt bros frá þér getur toppað daginn fyrir einhverjum jafnvel þótt honum líki ekki mjög vel við þig.
Allar nætur er EINHVER sem hugsar um þig áður en hann fer að sofa.
Þú merkir heiminum eitthvað.
Án þín er eitthver sem vill ekki lifa.
Þú ert sérstök/takur og góð/ur á þinn hátt.
Eitthver meira að segja eitthver sem þú tekur ekki eftir elskar þig.
Þegar þú gerir mestu mistök lífs þíns þá blessast það fyrr eða síðar.
Þegar þér finnst eins og allur heimurinn snýr við þer baki er það kannski bara einn eða tveir.
Þegar þú hugsar að þú getur ekki fengið það sem þú veist að þú eigir ekki séns í, gæti það alveg gerst að þú fáir það einn daginn ef þú hugsar rétt og bíður.
Brostu allavega 30% af deginum.
Segðu alltaf frá því þegar þér líður illa.
Ef þú átt frábæran vin, taktu þer þá tíma og sýndu honum að þú getur verið frábær líka.

Ætli það sé e-ð til í þessu ???


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 21:16:32 / Freknukrútt

jáhá

X : Borgarleikhúsið góðan dag, miðasala.

Ég : Já góðan daginn, ég ætlaði að panta hjá þér miða.

X : já á hvaða sýningu ?

Ég : Hungur, á morgun ef það er laust.

X : já það er laust þá, hvað má bjóða þér marga miða ?

Ég : Ég ætla að fá tvo.

X: já, og hver er kennitalan

Ég : 0904…blalba

X: Já, Birna Rebekka ?

Ég : jújú, það er ég

X: og hvernig má bjóða þér að greiða.

Ég: uuu já nei, ég ætla sko ekki að borga

X: ætlaru ekki að borga

Ég: hmm nei sko..

X:  (grípur fram í) ég er nú ekki viss um að það gangi þannig vinan.

Ég : ha, jú sko málið er

X: ertu á einhverjum samningi ???

Ég : hehe nei nei ég er bara með…

X: (grípur aftur fram í) jahh þú verður þá að ræða við e-n annan en mig…

Ég : hmm er það, en ég er sko bara með gjafakort !!!!!!!!!

X: já þú meinar, já þá kemuru bara svona hálftíma fyrir sýningu á morgun.

Ég : já þakka þér fyrir, bless.

X: takk sömuleiðis, bless.

 

 



Okei ég var frekar óskýr í byrjun…. En ekki grípa fram í .. leyfið fólki að klára það sem það er að reyna að segja .. hehehe


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 14:31:03 / Freknukrútt

haaa

Eru bara tveir sem að vilja vera vinir mínir ??? :(


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 00:02:13 / Freknukrútt

hrædd ???

Núna er ég aðeins að velta hlutunum fyrir mér... Ég átta mig ekki alveg á því hvort að ég sé óeðlilega mikill hræðslupúki, eða hvort að ég sé bara “eðlileg”

 

 



Nei, svona ef að ég hugsa þá er ég nánast hrædd við allt. Eins og t.d.

  • Fugla
  • Hæð
  • Vatn þá sérstaklega sjó og öldur !!!
  • Jarðskjálfta
  • Fugla
  • Áfengi
  • Umferðina
  • Hesta
  • Nálar og blóð
  • Fólk í búningum
  • Verð MJÖG hrædd þegar ég mæti eða heyri í jólasveinum :S
  • Alla líkamlega verki
  • Öll stríð og allt óréttlæti í heiminum
  • DAUÐANN – og þá sérstaklega við það að vera grafin lifandi :-(

 

 



Mynduð þið kæru vinir telja þetta eðlilegan hlut ??? og ég er pott þétt að gleyma einhverju.

En við skulum líka taka það fram að ég er engan vegin hrædd við skordýr. Ég get alveg setið og leikið mér með köngluló í hendinni, (hef að vísu ekki prufað það). Og ég hef til dæmis líka sleikt orm :) og er bara mjög stollt af því sko :-D

 

 



En dauðinn er mitt aðaláhyggjuefni, ég nefnilega tel mig vita soldið ... eða grunar það. Ætla reydar ekki að deila því með ykkur. Vil ekki láta loka mig inni. En mínar kenningar hræða mig mjög svo, og ég vil nú ekki vera að hræða aðra, geri ekki svoleiðis ;-)

 

 



Jæja þetta var bara svona smá pæling...

 

 



En svo megiði líka alveg vera dugleg að kommenta hjá mér sko ... ég meina ég er nú búin að vera dugleg að blogga. Ég lofa að vera líka dugleg að kommenta hjá ykkur :P

 

 



Ætti núna að vera að gera fyrirlestur og ritgerð í landafræði, sem bæ ðe vei á að vera um landakort !!! hverjus skemmtilegt getur þetta orðið ... 7-10 bls :D jeiiiiii ..... !!!

Er að hugsa um að beila bara á því og segja góða nótt :)

 

 




» 11 hafa sagt sína skoðun

04.03.2006 22:30:40 / Freknukrútt

ekkert skemmtilegt blogg :)

Núna á sko bara að hafa það gott. Frí í gær og þá var sko sofið :-) Stóð varla upp, jú að vísu stóð ég uppúr rúminu og rölti fram í sófa með sængina mína og hélt áfram að sofa, hversu yndislegt ??? Þurfti svo að fara að sækja pabba og pizzu, pabba fyrst því að hann var með peningana :-)

Sara kom svo til mín um kvöldið og við spjölluðum saman e-ð frameftir ... svo var það einn OC og aftur að sofa ....

Vaknaði í morgun og kveikti á TV-inu, festist þá yfir heimsmeistaramótinu í pooli 2005. Ég var orðin mjög spennt, og að lokum var það Wu Tue Chang sem bar sigur af hólmi... Ég er að hugsa um að skora á hann einn daginn :-)

Svo var dagurinn bara svona látlaus. Sótti mömmu í vinnuna og við fórum heim og mældum gluggana, niðrí rúmfatalager, gekk ekkert að kaupa gardínur því að mælingarnar pössuðu enganveginn. Svo að við enduðum á að kaupa okkur bara subbulegan ostborgara ... sluuurp

Og núna er það bara að halda áfram að horfa á OC, reyna að klára seríuna fyrir mánudaginn ;-)

Okei þetta er ekki skemtilegt blogg :P þannig ég held að ég láti þetta bara duga :-)

Bæ á meðan elskurnar mínar ...


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 20:42:30 / Freknukrútt

endurvakning

jæja, á maður ekki að fríska örlítið uppá þessa síðu og endurvekja hana :-)

Þetta er bara svolítið fyndið ... það koma bara svona tímabil þar sem að maður hefur lítið sem ekkert til að skrifa um, eða maður hefur ábyggilega helling að skrifa um, en kemur því bara ekki frá sér :-)

Það er svona hitt og þetta búið að vera í gangi. Þessi vika er búin að vera nokkuð frábrugðin öðrum. Það eru búnir að vera þemadagar í skólanum, Imbrudagarnir og er maður búin að vera sveittur við að allt fari þar vel fram :-) þeman var Afríka, mannúð og menning og voru margir áhugaverðir fyrirlestrar og aðrar uppákomur.

Í gær var svo árshátíð og allt sem henni fylgir. Það hófst á frumsýningu á Sister Act klukkan 12 og var það bara mjög svo vel heppnað. Kom mér kannski mest á óvart að sjá hana Kristínu Helgu í einu hlutverkinu, e-ð sem kom manni gjörsamlega á óvart.  Eftir það var svo tekið til eftir Imruna á met tíma, beint heim í sturtu og svo til Möggu í greiðslu ... ohh ég er svo ánægð með stelpuna, hún er svo ótrúlega hæfileikarík :) Svo fór ég heim í kjólinn (hennar Möggu) og beint til hennar Söru Bjarkar, þar var sett upp andlitið og svo í matinn....

Maturinn var frábær og skemtiatriðin sko ekki af verri endanum. Pétur strákur var veislustjóri g fór hann á kostum. Punkturinn yfir i-ið var svo aftur hún Kristín Helga vinkona mín. Haldiði að hún hafi ekki komið inn á sviðið sem Silvía Nótt, í búningnum og öllu tilheyrandi. Og ég veit ekki af hverju það kom mér svona mikið á óvart, ég hefði getað sagt mér þetta sjálf ... :-) En þetta var geggjað töff hjá henni, og jújú hjá gaurunum líka, Guðmundur og Kiddi tóku sig vel út....

Partý hjá Möggu og Rögnu, skemmtileg stemming og svo ballið í Gullhömrum. Buff var að spila og já tókst nokkuð vel upp að halda stemmingu... mega stuð og skemmtileg tónlist :-)

Takk fyrir kvöldið :-)


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 19:20:13 / Freknukrútt

opinberun

já hér hafiði það !!!!

(x) reykt sígarettu
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl (foreldranna)
(x) verið ástfangin/n
( )verið sagt upp af kærasta/kærustu
( )verið rekin/n
( )lent í slagsmálum EKKERT ALVÖRU
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
( x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki  HAFA EKKI ALLIR LENT Í ÞVÍ?
(  ;) verið handtekin/n
(x) farið á blint stefnumót ÓJÁ
( x) logið að vini/vinkonu  AÐ SJÁLFSÖGÐU
( x) skrópað í skólanum JÁ NÚNA AUNDANFARIÐ
( ) horft á einhvern deyja ef dýr teljast með
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x ) ferðast í flugvél  JÁJÁ
(  ;) kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
( X) farið á skíði (sem sagt í snjó) EITT SKIPTI OG ÞAÐV ERÐUR EKKI AFTUR
(X ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu HEHE JÁ REYNDAR
( X) farið á tónleika 

( X) tekið verkjalyf JÁ ÆTLI ÞAÐ NÚ EKKI
(  ) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna  ÆHJ EG VEIT ÞAÐ EKKI
(X)legið á bakinu úti og horft á skýin  HLÝTUR AÐ VERA
( X) búið til snjóengil HVER HEFR EKKI GERT ÞAÐ
( )haldið kaffiboð NEI NEFNILEGA EKKI SKO
( X) flogið flugdreka ÞAÐ TJA JAJA
( x) byggt sandkastala JÁ SVONA LÍKA GLÆSILEGANN
( X)hoppað í pollum HEHE ÞAÐ ER GAMAN
(X) farið í "tískuleik" (dress up)
( ) hoppað í laufblaðahrúgu
( X) rennt þér á sleða Á FULLU SKO
( x) svindlað í leik ER EKKI MIKIÐ FYRIR ÞAÐ, EN JÚJÚ
( X)verið einmana JÁ, UHU
(x) sofnað í vinnunni/skólanum ÞAÐ ER BARA BEST
( ) notað falsað skilríki NÍBB
( X) horft á sólarlagið JÁBB, ÉG OG SARA MÍN ÚTI Á GRÓTTU ;)
( x) fundið jarðskjálfta SUÐURLANDSSKJÁLFTARNIR 99, ER ÞAÐ EKKI ??
( ) sofið undir berum himni
( X) verið kitluð/kitlaður JÁ GÆTI LAMIÐ ÞAÐ FÓLK
(  ) verið rænd/rændur
( X) verið misskilin/n JÁ ÉG ER ALLTAF VOÐA MISSKILIN
(  ) klappað hreindýri/geit/kengúru FINNST ÞAÐ ÓTRÚLEGT
( x)farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi JAMM

( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) lent í bílslysi

( ) verið með spangir/góm
(X ) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(  ) borðað líter af ís á einu kvöldi NEI OJ HELD EKKI
( x) fengið déjà vu JEBB OFT
( X) fengið deja vu - vá held við höfum öll fengið það núna!!
( ) dansað í tunglskininu
( X) fundist þú líta vel út ÞAÐ HLÝTUR AÐ HAFA KOMIÐ FYRIR Í GAMLADAGA :p
(  ) verið vitni að glæp
(X ) efast um að hjartað segði þér rétt til JÁ ÞAÐ HEFUR ALVEG GERST
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)-nauðsynlegtí háskólanámi
( x) leikið þér berfætt/ur í drullunni EINHVERNTÍMANN Í SKÓLAGÖRÐUNUM JÁ :D
(x) verið týnd/ur TÝNDIST EINU SINNI Í IKEA

( X) synt í sjónum ÞAÐ KEMUR NÚ EKKI OFT FYRIR, VAR NÆSTUM DRUKKNUÐ
(X ) fundist þú vera að deyja OHH ÞAÐ ER SVOOOO VONT!!!
( x) grátið þig í svefn JÁJÁJÁJÁ
( X) farið í löggu og bófa leik AMM
(X ;) litað nýlega með vaxlitum JÁ ÚTÁ KANARÍ
J
(  )  sungið í karaoke
(   ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum ER OF STRESSUÐ TÝPA
( X) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki ÆHJ JÁ
( X) hringt símahrekk ÞAÐ ER ALLTAF SMÁ PRAKKARI Í MANNI SKO
( x ;) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér JÁ HELD ÞAÐ
( X) stungið út tungunni til að ná snjókorni AMM
(  ) dansað í rigningunni
(  ;) skrifað bréf til jólasveinsins EKKI SVO ÉG MUNI
(  ;) verið kysst/ur undir mistilteini
(  ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
( X) blásið sápukúlur OG ÉTIÐ ÞÆR LÍKA
(  ) kveikt bál á ströndinni/fjörunni
(  ) komið óboðin/n í partý
(  ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(X) farið á rúlluskauta/línuskauta EKKI MÍN DEILD SAMT
(X) hefur einhver óska þinna ræst AMM…BANNAÐ AÐ SEGJA SAMT
( ) farið í fallhlífastökk  ALDREI Í LÍFINU MYNDI EG LÁTA MÉR DETTA ÞAÐ Í HUG TAKK FYRIR
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
( X) pissað úti VAR LENGI AÐ KOMAST UPPÁ LAG MEÐ ÞAÐ


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 11:17:38 / Freknukrútt

gdkox

Vá uppgötvaði allt í einu að það voru ennþá jól hérna hjá mér ...

En annars ætlaði ég bara að segja það að ég er á lífi ... ég kem með blogg innan skamms :-)


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2006 22:27:35 / Freknukrútt

nýtt

hey !!! Tékkið þetta og endilega segið mér hvað ykkur finnst :-) 

www.123.is/draumadis


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11